Ný heimasíđa opnuđ!
Nćstu sýningardagar
Stjórnin hefur ekki verið mikið að keppast um hver bloggar mest eins og þið sjáið ;)
En hér koma næstu sýningardagar á fyndna farsanum okkar "Fullkomið Brúðkaup"!
3.Sýning: Miðvikudaginn, 24.mars kl. 20:00
4.Sýning: Fimmtudaginn, 25.mars kl. 20:00
Miðapantanir eins og alltaf => 481-1940 !
Kveðja, Viktor Ritari
Miðapantanir eins og alltaf => 481-1940 !
Kveðja, Viktor Ritari
Búiđ ađ "casta" í hlutverk !!!
Jæja þá er búið að “casta” í hlutverk fyrir næsta verk Leikfélagsins. Námskeiðið byrjaði á föstudaginn kl 19:30 og var byrjað á því að lesa saman yfir verkið. Það var góð mæting ca. 15-20 manns og fengum við að sjá nokkra gamla refi.
Síðan á Laugardaginn þá var mætt strax eftir leik kl 3 og var haldið áfram að lesa yfir það saman en í þetta skipti þá voru tveir teknir saman og þau beðin um að lesa yfir verkið saman upp á sviði.
Svo nú í dag sunnudaginn 31 janúar tilkynnti leikstjórinn Ari okkur hver fengu hlutverk. Og þau eru …
Hjalti Pálls: Bjarni
Zindri Freyr ( ný kjörinn formaður L.V ) : Trausti
Villi Sendó: Þröstur
Lilja: Rakel
Emma: Nína
Og á eftir að “casta” í hlutverk Nönnu.
Svo vantar okkur alltaf hjálp með ýmsa hluti sem koma að leikfélaginnu og ef þú hefur áhuga þá endilega að hafa samband við mig í síma 8992047
KV. Anton Örn
Viđ erum ađ byrja AFTUR !!! :D
Leikfélag Vestmannaeyja mun hefja námskeið fyrir leikritið “Fullkomið Brúðkaup” Föstudaginn 29 janúar. Mæting er í leikhúsið kl 19:30 og leikstjóri verksins er Ari Matthíasson.
Um leikstjórann Ara.
Hann lauk námi í Leiklistarskóla Íslands árið 1991, hann hefur verið áberandi innan Borgarleikhúsins, Þjóðleikhúsins og Loftkastalans meðal verka sem hann hefur komið fram á sviði eru:
Við borgum ekki,
Hárið,
Lína Langsokkur,
Latibær,
Galdrakarlinn í Oz,
Pétur Pan
Litla hryllingsbúðin.
Hann hefur einnig leikið í kvikmyndum eins og:
Veggfóður - Uggi
Sódóma Reykjavík - Þorbjörn
Malbik - Siggi
Sigla himinfley - Dúddi
Skýjahöllin - Verkstjórinn
Nei er ekkert svar - Raggi
Cold fever - Fararstjóri
Dís - Yfirþjónn á Borginni
Reykjavíkurnætur - Lúðvík læknir
Auk þess leikið í fjölmörgum sjónvarpsleikritum,
áramótaskaupum, barnamyndum og innslögum í fasta skemmti- og barnaþætti.
Og leikstýrt verkum eins og :
Cats - NFVÍ, Loftkastalinn
Saturday Night Fever - NFVÍ, Loftkastalinn
Mambo Kings - NFVÍ, Loftkastalinn
Hangið heima - Stúdentaleikhúsið, Möguleikhúsið
Skírnismál - Stúdentaleikhúsið, Ráðhús Reykjavíkur
Rocky Horror - FBV, Akranes
Hárið - FG, Garðabær
Litla Hryllingsbúðin - Saga Teater Chat Noir, Osló
Dýrin í Hálsaskógi - Litli leikklúbburinn,
Bíóhöllin
Rocky Horror - FG, Garðabær
Vetrarævintýri - LR, Borgarleikhúsið
Hann hefur einnig starfað sem togarasjómaður gengt trúnaðarstörfum í íþróttahreyfingunni og stéttarfélagi leikara, verið í forystusveit áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann , starfað við markaðsstörf, ráðgjöf og verið stjórnandi í heilbrigðisstofnun.
Um verkið Fullkomið Brúðkaup:
Brúðkaupsdagurinn er runninn upp. Brúðguminn vaknar með konu sér við hlið. Hann hefur aldrei séð hana fyrr. Hver er þessi kona? Hvað gerðist kvöldið áður? Hann flækist inní atburðarás sem hann ræður ekkert við, brúðurin á leiðinnim herbergið í rúst, nakin kona í rúminu og þá er bankað...
Fullkomið brúðkaup er frábærlega skrifaður gamanleikur, hraður, fullur af misskilningi, framhjáhöldum og ást. Höfundurinn er Íslendingum að góðu kunnur en hann skrifaði leikgerð á Sex í sveit sem er vinsælasta sýning LR frá upphafi.
Kv. Anton Örn
Frambjóđendur
Aðeins hefur ein boðið sig fram í Meðstjórnanda , Jóhanna Rut Óskarsdóttir, hún hefur verið innan L.V í eitt ár og verið smínka í Grýla Gerir Uppreisn, Rockubusku og núna síðast Pétur Pan.
A.T.H það eru tvær stöður lausar. Formaður og Meðstjórnandi.
Kosið verður um þessar stöður á félagsfundi 19 des.
Enginn er í framboði til Formanns, og þeir sem hafa áhuga á því að bjóða sig fram í þessa stöðu getur haft samband við Anton í síma 8992047
Félagsfundur 19 Des !
Á fundinum verður rætt
• Farið yfir fundagerð seinasta félagsfund
• 100 ára afmælið
• Kosið í stöðu Formanns og Meðstjórnanda
• almenna vinnu leikfélagsins
Endilega allir félagsmenn eða þeir sem hafa áhuga að hjálpa leikfélaginu, mætið á fundin og takið þátt í því að skipurleggja næsta ár með okkur.
Ef þig langar að bjóða þig fram í stjórn þá getur þú haft samband við mig (anton) í síma 8992047.
Mbk
Anton Örn
Lokasýning!
Fyrst það er svona langt síðan að við sýndum síðast, ætlum við að hafa tvær æfingar í vikunni:

Æfing, Fimmtudaginn 19.nóvember kl. 20

Mæting fyrir ALLA kl. 11
Kvetjið alla til þess að mæta á sýningu!
Viktor
Sýningar um helgina
5. Sýning, laugardaginn 24.október kl. 14
6. Sýning, laugardaginn 24.október kl. 17
Tvær sýningar á dag með dýrintis veitingum á milli !

Mæting fyrira ALLA klukkan 10 !
Kveðja,
Viktor R.
Ritari
Ćfing og nćstu sýningar
Miðvikudaginn 14.október
kl. 20:00
Næsta helgi verður svo svona:
3.Sýning, Laugardaginn 17.október kl. 14:00
4.Sýning, Laugardaginn 17.október kl. 17:00
Tvær sýningar á einum degi og verður pizzuveisla á milli sýninga!
Mæting fyrir alla klukkan 10 !
Kveðja
Viktor R.


